Enn er ég ekki komin með mataræðið í lag. Ég byrja vel, en klikka svo á kvöldin og fæ mér allt of mikið að borða. Datt líka í nammi um helgina :S Steig á vigtina áðan og var 88,5 kg
Ömurlegt! En jæja, best að bretta upp ermarnar og losa sig við þetta. Vinnutörnin þessa helgi er allavegana búin og ég var að kaupa mér nýja uppskriftabók með hollum réttum. Ég stefni enn á að vera 80 kg um páskana, treysti því að þegar ég loks fer af stað að það renni einhver sukk-kíló af mér fyrstu vikuna.
Ég fór reyndar ekki í ræktina í gær þar sem ég var að vinna um daginn og fór síðan líka á næturvakt… lagði mig bara, enda búin að vinna svo stíft um helgina líka. En það er ekkert því til fyrirstöðu að ég fari á eftir
Ætla að vera með betri tölu næsta þriðjudag… og hana nú!
30 janúar, 2008 klukkan 9:51 am |
Já – hér er amk ein sem skilur þig;)
30 janúar, 2008 klukkan 1:40 pm |
vonandi finnurur kraftinn og það sem fyrst
gangi þér vel
30 janúar, 2008 klukkan 2:28 pm |
Gangi þér sem best.