Ekki gengur allt eins og maður ætlar

29 janúar, 2008

Enn er ég ekki komin með mataræðið í lag. Ég byrja vel, en klikka svo á kvöldin og fæ mér allt of mikið að borða. Datt líka í nammi um helgina :S Steig á vigtina áðan og var 88,5 kg :( Ömurlegt! En jæja, best að bretta upp ermarnar og losa sig við þetta. Vinnutörnin þessa helgi er allavegana búin og ég var að kaupa mér nýja uppskriftabók með hollum réttum. Ég stefni enn á að vera 80 kg um páskana, treysti því að þegar ég loks fer af stað að það renni einhver sukk-kíló af mér fyrstu vikuna.

Ég fór reyndar ekki í ræktina í gær þar sem ég var að vinna um daginn og fór síðan líka á næturvakt… lagði mig bara, enda búin að vinna svo stíft um helgina líka. En það er ekkert því til fyrirstöðu að ég fari á eftir ;)

Ætla að vera með betri tölu næsta þriðjudag… og hana nú!