Og ræktin aftur

Það er eitthvað við það að fara í ræktina sem hvetur mig svo áfram. Mig langar miklu meira að borða hollan mat og hugsa um heilsuna. Ég er reyndar ekki enn farin að borða eins og ég vil gera, er að borða helst til of mikið. Ég þarf að skrifa niður það sem ég læt ofan í mig, þá passa ég svo vel upp á það ;) Byrja á því á morgun aftur.

Ef við gefum okkur að ég sé 88 kg núna og ætla að vera orðin 80 kg um páskana, þá þarf ég að missa kíló á viku. Það er vissulega ansi stíft, en ég ætla samt að stefna á það. Vonandi getum við farið austur á Egilsstaði í páskafríinu að hitta tengdó, og þá langar mig alveg virkilega að þau sjái mun á mér ;)

En já, ég dreif mig aftur í ræktina. Fann samt að ég var ansi orkulítil eftir púl gærdagsins og fór því bara rólega á CrossTrainerinn, en jók ágætlega þyngdarstigið og púlaði í klukkutíma. Tók samt ekki magaæfingar núna, var bara ekki að meika það. Var miklu orkumeiri í gær… það er svo merkilegt hvað orkan getur verið mismikil stundum frá degi til dags. Fer bara eftir svefni, mataræði, hreyfingu, andlegri líðan o.fl. Svona samblanda af hinu og þessu. Í dag er ég eiginlega alveg viss að það var bara hreyfingin í gær sem gerði mig svona þreytta í dag. Ég tek líka oft eftir þessu að þegar ég tek brennslu tvo daga í röð, þá er ég yfirleitt heldur orkuminni seinni daginn.

Jæja, fer líklega ekki í ræktina á morgun. Yngri stelpan á afmæli og það verður veisla, og svo fer ég að heimsækja vinkonur mínar seinna um kvöldið. Svo er stíf vinna um helgina, þannig að næsti tími í ræktinni verður væntanlega á mánudaginn.

2 svör to “Og ræktin aftur”

  1. Dídí segir:

    Dugleg. :)

    Til hamingju með stelpuna.

  2. flottogfin segir:

    Mikið ertu dugleg… Hef stundum kíkt á þig, en aldrei kvittað;( ég setti tengil á þig og fæ að fylgjast með komandi sigrum..

Skildu eftir svar