Verra gat það verið.

Var reyndar á næturvakt svo það er kannski ekki alveg að marka þyngdina, en set hana samt inn. Var 86,4 kg og hef því bætt á mig 1,5 kg þennan tíma yfir hátíðarnar. Ég er nú bara ansi sátt með það. Átti sko alveg eins von á að vera 88-90 kg, það hefði ekkert komið mér á óvart. Þannig að nú er bara að halda áfram ;) Fer þó líklega ekki í ræktina fyrr en í lok vikunnar… sé hvernig ég verð á morgun. Er nefninlega að fara á aðra næturvakt í nótt og ég er líka enn með smá þvagfærasýkingu. Þarf að læra á þennan Ipod… eða aðallega læra á Itunes :S Það hlýtur að koma ;)

3 svör to “Verra gat það verið.”

  1. Lilja segir:

    dúlega dúlega liljan mín!!!!
    u are my hero!!! ég SKAL vera búin að minnka eitthvað fyrir stóra daginn þinn í sumar ;)
    ég verð að taka mig vel út í míní hjúkkubúningnum ;) eða var það klappstýrubúningu ;)
    heheheh
    kyss og knús á þig sæta mín!!!
    þín bestasta Lilja

  2. Gamli sveppur segir:

    Sammála þetta hefur sloppið vel.
    Dóttir mín fékk sér ipod fyrir jólin það eru haldgóðar leiðbeiningar sem maður hleður niður. Mér tókst meira að segja að finna þar hvernig ætti að slökkva á tækinu. Barnið hins vegar brunaði áfram með þetta og er búin að afrita megnið af geisladiskunum sínum inn á tækið með því að nota itunes forritið.
    Bless, Gyða

  3. Glóin segir:

    Glæsilegt hjá þér að bæta ekki meiru á :-)
    Úff, ég er hálf fegin að eiga ekki vigt… En nú er engin miskunn hjá Magnúsi, og af skulu sentimetrar og kíló!
    Endilega bjallaðu e-n tíman þegar þú ert í ræktarstuði, og dragðu mig með
    Glóin

Skildu eftir svar