30 janúar, 2008
Í kvöld var prjónaklúbbur hjá mér og þar sem ég er svo holl þá verða allir að vera það með mér. Ég bauð upp á heimalagaða grænmetissúpu og nýbakað brauð úr spelti og ABmjólk með sólþurrkuðum tómötum… engin olía í uppskriftinni nema það sem slæddist með tómötunum. Svo var ég reyndar með blandaðar hnetur á borðinu og líka súkkulaðihúðaðar döðlur. Skrifaði reyndar ekki niður hitaeiningarnar í dag, en ég hef samt örugglega verið bara nokkuð góð. Allt voða hollt og var ekki að borða yfir mig af neinu. Mataræðið í gær var líka alveg í lagi.
Ég fór í ræktina í gær, reyndar bara í 40 mín á Cross-Trainerinn, þar sem ég var frekar seint á ferðinni, og svo fór ég smá í heita pottinn á eftir. Hafði ekki tíma fyrir ræktina í dag, en ég ætla bara á morgun.
En allavegana er ég ánægð með mig í gær og í dag
2 Ummæli |
Átaksfréttir |
Permalink
Búría skrifaði
29 janúar, 2008
Enn er ég ekki komin með mataræðið í lag. Ég byrja vel, en klikka svo á kvöldin og fæ mér allt of mikið að borða. Datt líka í nammi um helgina :S Steig á vigtina áðan og var 88,5 kg
Ömurlegt! En jæja, best að bretta upp ermarnar og losa sig við þetta. Vinnutörnin þessa helgi er allavegana búin og ég var að kaupa mér nýja uppskriftabók með hollum réttum. Ég stefni enn á að vera 80 kg um páskana, treysti því að þegar ég loks fer af stað að það renni einhver sukk-kíló af mér fyrstu vikuna.
Ég fór reyndar ekki í ræktina í gær þar sem ég var að vinna um daginn og fór síðan líka á næturvakt… lagði mig bara, enda búin að vinna svo stíft um helgina líka. En það er ekkert því til fyrirstöðu að ég fari á eftir
Ætla að vera með betri tölu næsta þriðjudag… og hana nú!
3 Ummæli |
Átaksfréttir |
Permalink
Búría skrifaði
23 janúar, 2008
Það er eitthvað við það að fara í ræktina sem hvetur mig svo áfram. Mig langar miklu meira að borða hollan mat og hugsa um heilsuna. Ég er reyndar ekki enn farin að borða eins og ég vil gera, er að borða helst til of mikið. Ég þarf að skrifa niður það sem ég læt ofan í mig, þá passa ég svo vel upp á það
Byrja á því á morgun aftur.
Ef við gefum okkur að ég sé 88 kg núna og ætla að vera orðin 80 kg um páskana, þá þarf ég að missa kíló á viku. Það er vissulega ansi stíft, en ég ætla samt að stefna á það. Vonandi getum við farið austur á Egilsstaði í páskafríinu að hitta tengdó, og þá langar mig alveg virkilega að þau sjái mun á mér
En já, ég dreif mig aftur í ræktina. Fann samt að ég var ansi orkulítil eftir púl gærdagsins og fór því bara rólega á CrossTrainerinn, en jók ágætlega þyngdarstigið og púlaði í klukkutíma. Tók samt ekki magaæfingar núna, var bara ekki að meika það. Var miklu orkumeiri í gær… það er svo merkilegt hvað orkan getur verið mismikil stundum frá degi til dags. Fer bara eftir svefni, mataræði, hreyfingu, andlegri líðan o.fl. Svona samblanda af hinu og þessu. Í dag er ég eiginlega alveg viss að það var bara hreyfingin í gær sem gerði mig svona þreytta í dag. Ég tek líka oft eftir þessu að þegar ég tek brennslu tvo daga í röð, þá er ég yfirleitt heldur orkuminni seinni daginn.
Jæja, fer líklega ekki í ræktina á morgun. Yngri stelpan á afmæli og það verður veisla, og svo fer ég að heimsækja vinkonur mínar seinna um kvöldið. Svo er stíf vinna um helgina, þannig að næsti tími í ræktinni verður væntanlega á mánudaginn.
2 Ummæli |
Átaksfréttir |
Permalink
Búría skrifaði
22 janúar, 2008
Voða gengur mér illa að koma mér af stað aftur. Byrja kannski daginn vel, og svo fer allt í rugl. Er bara búin að vera í sukki og svínaríi um helgina og örugglega búin að bæta á mig 3 kílóum, fer létt með það í svona sukki. Hef líka ekkert farið í ræktina. Ég bara VERÐ að fara að drífa mig af stað. Ekki það að hreyfingin breyti öllu varðandi það að grennast, en það hjálpar mér svo að halda mig við gott mataræði og hollustu.
Jæja, ég er nú búin að vera ágæt í dag. En ég bara verð að koma mér í gang aftur, ég ætla nú að vera flott í brúðarkjólnum, og hana nú. Stefni á að vera komin í 80 kíló fyrir páska. Veit ekki alveg hvað ég er núna, steig ekki á vigt eftir næturvaktina í nótt, en mig grunar að ég sé svona um 88 kíló eftir þetta sukkrugl. En slatti af því ætti líka að renna af mér á nokkrum dögum í hollustu. Segjum það allavegana.
Alveg spurning um að drulla sér í ræktina í kvöld. Ég þarf bara að koma mér af stað, þá gengur þetta vel.
5 Ummæli |
Átaksfréttir |
Permalink
Búría skrifaði