Nammidagur meðstóru N-i.

Í dag voru bakaðar piparkökur og piparkökuhús. Frumraun mín í smíði piparkökuhúsa ;) Það tókst bara alveg þokkalega… allavegana erum við alveg sátt ;) Það var líka keyptur haugur af sælgæti til að skreyta með og ég, ásamt öðru heimilsfólki, er búin að vera að japla á nammi í AAAAALLAN dag. Jebb, svona var nú mataræðið mitt í dag.

Svo bakaði ég pizzu, mína yndislegu speltpizzu með hollu áleggi að vísu, en ég er að fá mér smá bjór líka. Ég er búin að vera á fullu í allan dag, alveg síðan kl. 8 í morgun, og ég hef varla samviskubit yfir þessu einu sinni. Mér finnst ég bara alveg eiga þetta skilið og ég verð bara að taka afleiðingunum á þriðjudaginn. Ég vil þó halda 85 kílóunum fram að, og helst yfir jól.

Ég skal vera í hollustunni á morgun ;)

Ein ummæli to “Nammidagur meðstóru N-i.”

  1. Heiða segir:

    Mar má nú aðeins;) Jólin og börnin með og svona ;)

    En talandi um piparkökuhús þá fór ég aðeins í búðir Kringluna um daginn og þar var piparkökuhúsakeppni. Alveg ótrúlega flott margt af þessu!

Skildu eftir svar