Í dag voru bakaðar piparkökur og piparkökuhús. Frumraun mín í smíði piparkökuhúsa
Það tókst bara alveg þokkalega… allavegana erum við alveg sátt
Það var líka keyptur haugur af sælgæti til að skreyta með og ég, ásamt öðru heimilsfólki, er búin að vera að japla á nammi í AAAAALLAN dag. Jebb, svona var nú mataræðið mitt í dag.
Svo bakaði ég pizzu, mína yndislegu speltpizzu með hollu áleggi að vísu, en ég er að fá mér smá bjór líka. Ég er búin að vera á fullu í allan dag, alveg síðan kl. 8 í morgun, og ég hef varla samviskubit yfir þessu einu sinni. Mér finnst ég bara alveg eiga þetta skilið og ég verð bara að taka afleiðingunum á þriðjudaginn. Ég vil þó halda 85 kílóunum fram að, og helst yfir jól.
Ég skal vera í hollustunni á morgun
Búría skrifaði