Sé bara ekki fram á að komast í ræktina fyrr en á mánudaginn. Kemst ekki í kvöld, því kallinn þurfti að vinna fram eftir og verður örugglega ekki búinn fyrr en svona um kl 21. Á morgun er ég búin að lofa að baka og skreyta piparkökur, plús að setja upp eitthvað jólaskraut í húsinu. Svo er hinn hefðbundni pizzubakstur um kvöldið. Á sunnudaginn erum við að fara í leikhús að sjá Gosa og svo beint á jólatrésball hjá Gerplu á eftir, og svo fer ég á stubb á slysó kl. 19:30-23:30 (ætla ekki að gleyma þessum).
Já, það verður bara að koma í ljós hvort ég get troðið ræktinni þarna inn einhversstaðar
Búría skrifaði
Búría skrifaði