Eruð þið eitthvað búin að spá í hvernig þið ætlið að haga mataræðinu og hreyfingunni yfir jól og áramót stelpur? Ég er aðeins farin að spá í þetta, en ekki búin að setja niður neitt plan. Ekki nema það að á jóladagsmorgun stefni ég á að ganga upp á Keili með pabba og síðan fer ég að vinna á kvöldvakt á slysó seinni partinn. Þannig að sá dagur ætti að vera nokkuð fínn. Á aðfangadagskvöld ætla ég bara að leyfa mér góðan mat og góðgæti, en fram að því og milli jóla og nýárs vil ég reyna að hemja mig. Ég hugsa að ég reyni að leita að einhverjum hollum uppskriftum að jólasælgæti, gerði eitthvað í fyrra með döðlum, haframjöli og kókosmjöli. Vissulega hitaeiningaríkt, en þó skárra en bara fita og sykur. Þarf að leita að þessari uppskrift aftur. Hugsa svo að gamlárskvöld verði aftur svona nammidagur þar sem ég má allt
Laugar eru með góðan opnunartíma yfir hátíðarnar skilst mér, og það er um að gera að nýta sér það.
En annars líður mér voða vel núna. Ég ákvað að vísu að fara í ræktina eftir tannsann og svo beint í nudd. Það var líka mjög fínt, fyrir utan að ég var aðeins lengur hjá tannlækninum en ég reiknaði með, og náði því aðeins 40 mín á Cross Trainernum. En það var rosalega gott að fara í nuddið beint eftir æfingu. Svo hafði nuddarinn svo góðan tíma, þar sem hann átti ekki von á neinum strax á eftir mér, þannig að ég fékk góðan klukkutíma í nudd og svo bara steinsofnaði ég og svaf þarna í ca 40 mín eftir nuddið. Ferlega næs
Vinna á morgun og hinn og svo er helgarfrí. Ég ætla nú að reyna að gera svolítið fínt hérna um helgina og setja upp jólaskrautið. Ætlaði að vera löngu búin að því, en hef ekki gefið mér tíma. Jæja, það verður vonandi jólalegt hér um helgina. Maður kannski bakar piparkökur og gerir piparkökuhús með krökkunum
5 desember, 2007 klukkan 5:42 pm |
Hreyfing verður líklega lítil hér á bæ um jólin, reyndar verður lítill hvutti í bænum sem ég þarf að labba með reglulega svo það kemur upp á móti.
Í matarmálum ætla ég að vera 100% nema ef ég fer yfir á þessum extra 2 krossum á danska eða yfir 1/2 l af gosi á dag þá er það í fínu og mun ég gera það samviskulaust.
Mig kvíðir ekkert fyrir þessu, sé fyrir mér auðveld jólaboð og litlar sem engar freistingar. Svo kemur í ljós hvort hið stanslausa framboð af kökum og macintosh muni breyta því.
5 desember, 2007 klukkan 8:07 pm |
Ég hef einmitt líka verið að spá í jólin og er ekki enn búin að ákveða hvernig þau verða
En ræktin hér verður einmitt með góðan opnunartíma þannig ég ætla að nýta mér það eins og ég get 
En gangi þér vel!
6 desember, 2007 klukkan 12:56 pm |
Ég stefni á 100% ddv jól. En ég mun þó ekki taka vigt með mér í nein boð eða svoleiðis, bara þegar ég er heima. Svo bý ég til DDV deserta til að eiga. Mín mesta freisting verður machintosh… en ég læt það ekkert trufla mig
Hreyfingarplanið á bara að vera eins og venjulega. Ætla að fara á þorláksmessu og svo um leið og opnar eftir jól (sennilega 28. des). Mig langar að léttast yfir jólin :p
Annars var ég svo heilluð af hugmyndinni þinni að fara út að labba á jóladag að ég er að spá í að stofna til fjölskyldugöngu eitthvert. Draga pabba og mömmu og helst sem flesta í einhverja skemmtilega göngu
Bráðsniðug hugmynd!
6 desember, 2007 klukkan 1:48 pm |
Já, pabbi hefur farið upp á Keili á jóladag s.l. 6 eða 7 ár minnir mig. Ég fór með honum í fyrra og langar að halda þessu áfram
Svo er annar gönguhópur sem gerir þetta sama á hverju ári á jóladag, hittumst þarna
Sá hópur hefur farið í held ég 13 ár, allavegana þeir sem hafa gert þetta oftast
6 desember, 2007 klukkan 6:35 pm |
Hehehe. Kannski að maður fari bara á Keili :p