Ég er búin að ná því takmarki sem ég ætlaði að ná fyrir jól. Vigtin sýndi mér 84,9 kg í morgun
Þannig að ég er búin að losa mig við sukk-kílóin og meira til. Það runnu af mér 2,7 kg þessa vikuna – ótrúlegt! Ja og þó, slatti af þessu hefur náttúrulega bara verið bjúgur eftir sukkið mitt. En það er frábært að vera búin að ná 85 kg takmarkinu… nú er bara að halda því.
Fórum að versla helling af jólagjöfum í dag, fínt að vera búin með stóran hluta af þessu. Það er alveg spurning hvort ég hafi orku í ræktina á eftir, er bara alls ekkert viss um það. Hins vegar ætla ég að drífa mig í fyrramálið, fara svo til tannlæknis og svo í nudd eftir hádegi
Búría skrifaði