23 desember, 2007
Hér verður ekki stigið á vigt fyrr en eftir áramót. Síðasta vika hefur verið hræðileg sukkvika og ég er örugglega búin að bæta á mig 3 kílóum. Reikna alveg með að vera aftur um 90 kg eftir jólin :S Líkaminn minn er einhvernvegin svona, sogar á sig sukk-kíló, en er svo oft fljótur að losa sig við þau aftur þegar sukkið hættir. Á morgun verður náttúrulega jólamatur og jólasælgæti, svo ekki fer ég mikið í megrun þá.
Ég ætla samt að labba upp á Keili með pabba á jóladag. Og svo er ég á kvöldvakt á slysó, svo kannski verð ég ekki í ofursukki þann dag. Kemst vonandi eitthvað smá á strik á milli jóla og nýárs, en síðan er bara stefnan tekin á gott átak eftir áramótin.
4 Ummæli |
Átaksfréttir |
Permalink
Búría skrifaði
12 desember, 2007
Þetta var sem sagt mallað í kvöldmatinn. Ætla að henda inn uppskriftinni hérna því þetta var svo gott
600 gr nautahakk
1 rauðlaukur
1 mini hvítlaukur eða 2-3 hvítlauksrif (eftir smekk)
200 grömm ferskir sveppir
1 dós niðursoðnir tómatar (400 gr)
1 dós tómatþykkni (tomato paste – 170 gr)
200 gr kotasæla
1 msk ólívuolía
Ítölsk kryddblanda eftir smekk
Grillkrydd eftir smekk
Þurrsteikið hakkið á pönnu. Saxið laukinn smátt og rífið hvítlaukinn niður. Skerið sveppina í sneiðar eða litla bita. Takið hakkið til hliðar. Steikið laukana og síðan sveppina í olíunni. Bætið hakkinu út í og setjið síðan niðursoðna tómata, tómatmauk og kotasælu út í. Kryddið eftir smekk og hrærið vel. Látið malla í ca 5 mínútur.
Samkvæmt mínum útreikningum innihalda 100 grömm af þessu ca 105 kkal., 10,7 gr prótein, 4,8 gr fitu og 4,6 gr kolvetni.
Þetta er alveg afskaplega gott með speltpasta t.d. En síðan má líka gera úr þessu Bolognese með því að skella þessu í eldfast mót og setja ost yfir og baka í ofni þar til osturinn bráðnar. Svo bara velja eitthvað gott pasta með
Annars er mataræðið búið að vera fínt í dag, sem betur fer. Fór samt ekki í ræktina, er bara voða asnaleg og þreytt og hreinlega nenni ekki. Er líka með dúndrandi hausverk og ætla bara að reyna að hvíla hann úr mér.
Og já, vigtin var ekki eins slæm við mig og ég átti von á. 85,4 kg í morgun. Get alveg sætt mig við það miðað við nartið og sælgætisátið s.l. viku. Á meðan ég held mig í kringum 85 kg er ég nokkuð sátt fram yfir áramótin
2 Ummæli |
Uppskriftir, Átaksfréttir |
Permalink
Búría skrifaði
11 desember, 2007
Eitthvað er átakið í smá lægð núna. Kemur mér svo sem ekkert á óvart að það skuli koma að svona tímabili. Ég næ einhvernvegin ekki alveg að halda mig í hollustunni, of mikið nart á mér inn á milli. Í dag er eiginlega vigtunardagur, en þar sem ég var á næturvakt s.l. nótt þá einhvernvegin fer þetta allt úr skorðum og ekki að marka morguntöluna sem slíka. Ætli ég drullist ekki á vigt í fyrramálið, er samt ansi hrædd um að ég verði nær 86 kílóunum frekar en 85. Það verður þá bara að hafa það. Samt mun skárra en að vera 100 kg.
Hef heldur ekkert farið í ræktina, það er eitthvað allt í svo mikilli óreiðu hérna. Krakkarnir búnir að vera lasnir og mikið stúss og þeytingur. Er voða fegin að ég skuli eiga frí á morgun. Ætla að reyna að koma skipulagi aftur á og vera dugleg fram á laugardag, en þá er jólahlaðborðið í vinnunni
En jæja, Stekkjastaur kemur víst í nótt og krakkarnir eru mjög spenntir og bara báðu um það að fyrra bragði að fara að sofa.
2 Ummæli |
Átaksfréttir |
Permalink
Búría skrifaði
9 desember, 2007
Ekki alveg í hollustunni eins og ég ætlaði. Það hafa laumast nokkrir konfektmolar upp í mig og líklega eins og tvær piparkökur. Jájá.
Í dag byrjuðum við á að skreyta piparkökur. Síðan var farið í leikhús að horfa á Gosa, mjög gaman
Og síðan brunað í Gerplu til að reyna að ná jólaballinu. Rétt náðum í lokin þegar jólasveinarnir voru að gefa krökkunum nammipokana. En það var allt í lagi, samt búið að vera voða gaman hjá okkur.
Í kvöldmatinn eldaði ég speltpasta með kjúklingi, alveg ágætlega hollt. Svo er ég reyndar að fara á aukastubb á slysó. Stundum skil ég ekkert í mér að vera að segja já við svona vöktum, nenni svo innilega ekki. En jájá, þetta eru bara fjórir tímar.
En hey, á ég að sýna ykkur ofskreytta, yfirhlaðna, dásamlega piparkökuhúsið okkar?

3 Ummæli |
Átaksfréttir, Ýmislegt |
Permalink
Búría skrifaði
5 desember, 2007
Eruð þið eitthvað búin að spá í hvernig þið ætlið að haga mataræðinu og hreyfingunni yfir jól og áramót stelpur? Ég er aðeins farin að spá í þetta, en ekki búin að setja niður neitt plan. Ekki nema það að á jóladagsmorgun stefni ég á að ganga upp á Keili með pabba og síðan fer ég að vinna á kvöldvakt á slysó seinni partinn. Þannig að sá dagur ætti að vera nokkuð fínn. Á aðfangadagskvöld ætla ég bara að leyfa mér góðan mat og góðgæti, en fram að því og milli jóla og nýárs vil ég reyna að hemja mig. Ég hugsa að ég reyni að leita að einhverjum hollum uppskriftum að jólasælgæti, gerði eitthvað í fyrra með döðlum, haframjöli og kókosmjöli. Vissulega hitaeiningaríkt, en þó skárra en bara fita og sykur. Þarf að leita að þessari uppskrift aftur. Hugsa svo að gamlárskvöld verði aftur svona nammidagur þar sem ég má allt
Laugar eru með góðan opnunartíma yfir hátíðarnar skilst mér, og það er um að gera að nýta sér það.
En annars líður mér voða vel núna. Ég ákvað að vísu að fara í ræktina eftir tannsann og svo beint í nudd. Það var líka mjög fínt, fyrir utan að ég var aðeins lengur hjá tannlækninum en ég reiknaði með, og náði því aðeins 40 mín á Cross Trainernum. En það var rosalega gott að fara í nuddið beint eftir æfingu. Svo hafði nuddarinn svo góðan tíma, þar sem hann átti ekki von á neinum strax á eftir mér, þannig að ég fékk góðan klukkutíma í nudd og svo bara steinsofnaði ég og svaf þarna í ca 40 mín eftir nuddið. Ferlega næs
Vinna á morgun og hinn og svo er helgarfrí. Ég ætla nú að reyna að gera svolítið fínt hérna um helgina og setja upp jólaskrautið. Ætlaði að vera löngu búin að því, en hef ekki gefið mér tíma. Jæja, það verður vonandi jólalegt hér um helgina. Maður kannski bakar piparkökur og gerir piparkökuhús með krökkunum
5 Ummæli |
Átaksfréttir |
Permalink
Búría skrifaði