Komin aftur á gott ról

Já, mér finnst ég vera komin aftur á gott ról og vigtin að fara niður á nýjan leik. Mataræðið hefur verið bara fínt í dag, en svona var dagurinn fram að þessu:

Morgunmatur
1 stk. Polarkraft extrem m. heimalöguðu túnfiskssalati (5% sýrður rjómi, túnfiskur, tómatþykkni (tomatopaste), rauðlaukur og hvítlaukur) annars vegar, og L&L, 11% osti og skinku hins vegar.

Hádegismatur
1 dós Dagmál – hindber og vanilla.
1 stk. Polarkraft extrem m. heimalöguðu túnfiskssalati annars vegar, og L&L og banana hins vegar.

Millibiti
1 stk. Protein Blast m. kókosbragði.

Kvöldmatur
200 gr. ýsa velt upp úr kókos, möndlum, speltmjöli og sesamfræjum + kryddi, steikt á pönnu í smá ólívuolíu.
100 gr villihrísgrjónablanda.
40 gr 5% sýrður rjómi
ferskt salat m. sólþurrkuðum tómötum, ólívum, furuhnetum og kirsjuberjatómötum.

Kvöldsnarl er eftir og enn óákveðið hvað verður.

Ég fór líka í ræktina áðan og lyfti. Tók brjóstkassa og þríhöfða… og svo magaæfingar. Fór líka í gær og brenndi bara. Hins vegar fer ég ekki meira í ræktina þessa viku, er að vinna svo stíft um helgina.

5 svör to “Komin aftur á gott ról”

  1. Dídí segir:

    gmg hvað kvöldmaturinn þinn hljómar vel! *slef*
    Má ég koma í mat? *puppy eyes* :lol:

  2. Búría segir:

    Híhí, hann var líka alveg rosalega góður. Var bara að prófa mig áfram, vildi ekki hafa eitthvað jukki rasp. En rosalega gefa sesamfræin gott bragð, og auðvitað kókosinn og möndlurnar ;D Allavegana var þetta rosalega gott ;)

  3. Dídí segir:

    Trúi því sko vel! :)

  4. Þuríður segir:

    Girnó.. mmm!
    Ég hef verið að kíkja á síðuna þína..
    gaman að sjá að þú sért komin á gott ról :D

    kv. Þuíður

  5. Heiða segir:

    Úlala hljómar rosavel… líka soldið frumlegt… ekki þetta sama gamla :)

Skildu eftir svar