Hamingja, hamingja, hamingja. LOKSINS er uppáhaldsbrauðið mitt komið til Íslands. Ég uppgötvaði þetta brauð þegar ég bjó í Noregi… reyndar í Svíþjóð þar sem maður fór oft yfir til að versla. En þetta heitir Polarkraft extrem og er mjög trefjaríkt og 100 gr innihalda bara 170 kkal, sem er það minnsta sem ég veit um fyrir nokkuð brauð. Það er líka tiltölulega lítið af kolvetnum í því, eða 33 grömm í hverjum 100 grömmum. Þess má geta að svona venjulegt heilhveitibrauð inniheldur um 50 grömm af kolvetnum og 260 hitaeiningar í hverjum 100 grömmum, og brauð eins og Orkubrauð eða Fitty brauð, sem eru ágæt og innihalda ca 34-35 grömm af kolvetnum í hverjum 100 grömmum, innihalda samt um 220 kkal í sama magni. Þetta Polarkraft extrem er svona hálfgert rúnnstykki, seld 6 saman í pakka og hvert stykki vegur um 80 grömm, eða eins og tvær brauðsneiðar. Svo fyrir utan alla þessa hollustu þá er það bara alveg rooooosalega gott
Fann þetta í Bónus… alveg snilld
En nóg um það. Ég hef ekki komist í ræktina í gær eða í dag. Hef verið í svo miklu stússi; versla með ömmu, skutla Elísu í söngupptöku, prjónaklúbbur, tónleikar, hjálpa krökkunum með heimaverkefnin o.s.frv. Er bara drulluþreytt núna og nenni varla í ræktina. Hefði svo sem gott af því að fara, ég kemst ekkert um helgina þar sem ég er að vinna svo mikið. Sé til á eftir þegar kvöldmaturinn er sjatnaður. Fer kannski bara þannig að ég geti horft á ANTM á Cross Trainernum og lyfti á morgun í staðin.
Mataræðið hefur verið mjög fínt, sátt með það, og ég vona að þessi sukkkíló renni nú af mér. Vil ekki hafa þau :Þ
28 nóvember, 2007 klukkan 10:56 pm |
Iss þetta rennur af þér í þessari viku
29 nóvember, 2007 klukkan 8:52 am |
Sæl frænka, takk fyrir kveðjuna um daginn og bið að heilsa móður þinni sömuleiðis.
Ég ætla að athuga með þetta brauð því ég er einmitt mikið fyrir trefjar og hef verið að borða fitty brauð og orkubrauð. Ef Bónus er með þetta hér í bæ.
Kveðjur, sá gamli sveppur