87,6 kg
Upp um 1,2 kg. Freeeekar ömurlegt að sjá þetta þó ég hafi búist við því. Reyndar er þessi vigtun kannski ekki alveg sambærileg við hinar þar sem ég var á næturvakt og kerfið allt svolítið í rugli. En þetta er samt talan. Æ, ég vissi þetta svo sem alveg, fann það bara á líkamanum. Finn enn fyrir eins og ég sé smá bjúguð, sem er svo sem ekkert óalgengt eftir næturvaktirnar, en ég er líka voða eitthvað þung í magann bara. Það er eins gott að ég verði aftur komin niður í 86,4 kg næsta þriðjudag. Stefni enn á að ná 85 kg fyrir jól, ég á alveg að ná því.
27 nóvember, 2007 klukkan 3:37 pm |
Já þetta er leiðinlegt en maður verður víst bara að díla við það. Held samt reyndar að mikið af þessu sé vökvi og slíkt þar sem það er svo stutt síðan djammið var, svo hjálpa næturvaktirnar áreiðanlega ekki!
Mæli með eplaediki í vatn ef þér finnst þú með mikinn bjúg, ég fæ mér stundum svoleiðis og þá rennur vökvinn af manni. Stórmerkilegt.
28 nóvember, 2007 klukkan 5:24 pm |
Ókei, en þetta er samt ekkert svo slæmt. Þú sukkaðir aðeins oglíkaminn brást svona við því. Svo bara heldurðu áfram og ferð að hrapa svona niður eins og þú ert búin að vera að gera
Hef fulla trú á að þú náir 85 kg fyrir jól og jafnvel meira!