Bleeeeeeeah!

Fuss bara, ég er viss um að ég er með 2 kg af bjúg og sukki á mér. Finn alveg að ég er meira svona blobbleg. Finn fyrir undirhökunni og finnst puttarnir feitir. Kannski er þetta bara einhver ímyndun í mér, stundum er maður bara svona andlega feitur.

Ég er svo sem búin að standa mig í mataræðinu í dag, en mér finnst ég samt voða þung á mér. Er svo að fara á aukavakt á slysó í nótt og var eiginlega búin að hugsa mér að far aí ræktina bara svona rétt áður en ég færi í vinnu. En svo datt kallinum í hug að fara í bíó með mági mínum, og mér fannst nú alveg einum of að skikka hann til að sleppa því svo ég gæti farið í ræktina. Þannig að ég rauk bara af stað í ræktina rétt fyrir hálfsjö og náði 35 mínútum á Cross Trainernum, áður en ég þurfti að rjúka heim aftur og skila kallinum bílnum. Er vön að taka 50 mín, en þetta var þó skárra en að sleppa því alveg að fara.

Hef svo sannarlega ekki mikla trú á þyngdartapi á morgun… satt að segja verð ég himinlifandi ef ég verð ekki búin að þyngjast um meira en eitt kíló síðan fyrir viku. Já, það hlaut að koma að einum svona skelli ;)

2 svör to “Bleeeeeeeah!”

  1. Heiða segir:

    Gott hjá þér að drífa þig í ræktina. Stundum er svo skrýtið að manni finnst ekki taka því að fara ef maður nær bara 30 mín…. en 30 mínútur eru nú samt 30 mínútum meira en ekki neitt :)

  2. Búría segir:

    Einmitt, það var það sem ég hugsaði og ákvað bara að rjúka út ;) Er mjög ánægð með það núna, samviskubitið er aðeins minna, hehehe.

Skildu eftir svar