Humm humm sukk sukk

Já, í fyrsta skipti í langan tíma er ég bara virkilega óánægð með mig og mig grunar að ég verði þyngri á þriðjudaginn núna en fyrir viku. Fór á djamm í gær sem ég hefði alveg mátt sleppa. Fór fyrst til frænku minnar í heimsókn, fengum okkur bjór og kjöftuðum heillengi og það var bara gaman. Svo fékk ég þá flugu í hausinn að fara í slysópartýið og fór með þeim niður í bæ á eitthvað skrall. Fórum á Oliver, sem mér finnst reyndar alveg ótrúlega leiðinlegur staður. Skil ekki afhverju hann verður alltaf fyrir valinu hjá þessu fólki :Þ Jújú, skemmti mér vel og allt það, en þetta var samt djamm sem ég hefði alveg getað verið án. Líka það að ég ætlaði ekkert á þetta djamm, var búin að ákveða áður að fara ekki. Svei mér þá, stundum held ég að maður bæti frekar á sig ef svindlið er ekta svindl, en ef maður gerir það meðvitað að leyfa sér eitthvað, þá sleppur maður betur.

Dagurinn í dag var bara ónýtur, fór að vísu í barnaafmæli hjá litla frænda unnustans, lifði það svona sæmilega af. En ég er ekkert búin að hugsa allt of vel um hollustuna í dag. Fékk mér að vísu engar kökur, en fékk mér heitan brauðrétt og eitthvað smjördeigsstykki með skinku og osti… örugglega stúrfullt af fitu. Já og fékk mér líka smá lakkrískonfekt. Æ, maður veit bara alveg hvenær maður fer yfir strikið og stundum finnur maður bara hvort maður sé þyngri eða ekki, og mér finnst ég bara ógeðslega þung núna. Ég veit svo sem alveg að það rennur eitthvað af mér á morgun, en hvort það dugi til að vera í sömu þyngd og fyrir viku… er ekki viss um það.

Jæja, bleble, það hjálpar ekkert að væla og vola. Verð bara að vera dugleg á morgun og svo verður ekkert sukk á mér næstu vikurnar… og hana nú. Við förum náttúrulega í þetta jólateiti í vinnunni 15. des, en fram að því ætla ég að vera rosa dugleg.

3 svör to “Humm humm sukk sukk”

  1. Heiða segir:

    Ókei, smá babb í bátinn…. En þú hristir þetta fljótt af þér heyri ég. Ég held að þessi þunga tilfinning í líkamanum sé líka til komin af öllu vibbadótinu sem er í namminu, þannig að kannski lekur mest af þessu af þér… vonum það allaveganna :)

  2. Dídí segir:

    Veistu ég get vel trúað að maður þyngist meira að óplönuðu svindli því þá er meiri hætta á að maður sé að sleppa sér bara á beit í allt ógeðið.
    En við vonum bara það besta og á morgun er nýr dagur með blóm í haga. ;) Gangi þér vel í komandi viku!

  3. mjona segir:

    Sæl datt óvart inn á síðuna hjá þér og varð bara að kommenta ;-) Vildi bara segja gangi þér vel ;-) þó að maður “detti í það” í eitt skipti er bara að halda áfram strax á eftir….hef því miður síðasta mánuðinn dottið aðeins of oft af sporinu og virðist réttlæta það fyrir mér að þar sem að ég gerði smá í gær er allt í lagi í dag þannig að bara um að gera halda sér strax á beinni brautinni eftir smá hliðarspor :-) en gangi þér vel skvís.

Skildu eftir svar