Það er svo dásamlegt að eiga frí um helgar
Krakkalakkarnir eru hjá mér núna, þau eru svo yndisleg. Las fyrir þau Harry Potter áðan og Hjalti Sævar ofurhetja datt nú út af á meðan ég var að lesa, athyglin ekki alveg nógu mikil, hehehe, enda er hann bara fimm ára. Arna Valdís, sem er sjö ára, fylgdist hins vegar spennt með og las eiginlega með í hljóði á meðan ég las upphátt. Elísa Auður gelgja nennti hins vegar ekkert að hlusta, enda að verða 13 ára eftir tvo mánuði.
Ég dreif mig í ræktina áðan, ánægð með mig þar. Var nefninlega alveg á mörkunum að nenna, en fór svo samt. Tók bak og tvíhöfða. Ætla svo á morgun og brenna.
Mataræðið er bara búið að vera rosa fínt, fyrir utan að ég skóflaði í mig heilu Toblerone stykki, hehehe. Þetta er svona 100 gramma stykki, sem er nú alveg slatti af kaloríum, eða svona um 525. En uss hvað þetta var gott, og þar sem þetta var meðvitað svindl þá hef ég ekkert samviskubit. Mágkona mín kom með þetta fyrir viku þegar hún skrapp heim frá DK, en hún er að skólast þar í nokkra mánuði, og þetta er bara búið að vera uppi í skáp. Ég á alveg fimm svona stykki í viðbót. Hugsa að ég hendi hluta af þessu í Elísu og kærastann… hann er reyndar algjör Toblerone-isti. Var nánast sár að systir hans gæfi mér heilan pakka af þessu alveg eins og honum, hahaha ;D
Jæja, ég og mitt nammi, er samt ekki að þyngjast, ég finn það alveg
Þetta er sko alveg lífsstíll sem ég get sætt mig við
Vera dugleg að mestu, en leyfa mér alveg smá nautnasemdir inn á milli
Búría skrifaði