Endalaust sælgætisát

22 nóvember, 2007

Ég er bara ekki hissa á að mér hafi gengið illa að koma mér í hollustu og standa við átakið á meðan ég var bara að vinna á slysó. Það er nánast undantekning að það vaði ekki allt þarna í sælgæti í skálum þegar maður er á vakt. Fór þarna í gær og jújú, ákveðið að panta kvöldmatinn frá einhverjum skyndibitastað og svo var keypt hellings nammi fyrir afganginn og dreift á milli starfsfólks. Ég reyndar var með nesti, svo ég var ekki með í pöntuninni, en sælgætið var náttúrulega flóandi þarna út um allt. Ég verð bara að viðurkenna að ég stóðst ekki freistinguna og fékk mér. Ætlaði nú bara að fá mér svona 5 mola, en þeir urðu örugglega 30.

En jájá, ég græt það ekkert svakalega, hef engar áhyggjur af vigtinni út af einu litlu svindli. Svo ætla ég bara í ræktina á eftir.

Nú er jólateiti hjá slysó á næstunni og ég er að velta fyrir mér hvort ég eigi að kíkja eftir matinn. Ætla ekki að vera í matnum, bara tími því ekki, þar sem við erum svo að fara í jólateiti hjá aðalvinnustaðnum mínum líka. Ég reyndar efast um að ég nenni í þetta slysópartý. Þá dett ég bara í það og verð þunn daginn eftir, og það er bara leiðinlegt.

En jólateitið hjá Laser-Lækningu er 15. des og þá verður haldið að Búðum og gist eina nótt. Ég og unnustinn ætlum að fara og hafa það rosalega gott. Svo er spurning hvort maður tími að splæsa í einhvern nýjan, flottan kjól fyrir þetta tilefni, svona til að monta sig af kílóamissinum. Eða hvort ég grafi bara upp einn af gömlu kjólunum mínum sem ég var hætt að passa í ;) Ætla allavegana að vera voða fín ;)