Komin aftur á gott ról

29 nóvember, 2007

Já, mér finnst ég vera komin aftur á gott ról og vigtin að fara niður á nýjan leik. Mataræðið hefur verið bara fínt í dag, en svona var dagurinn fram að þessu:

Morgunmatur
1 stk. Polarkraft extrem m. heimalöguðu túnfiskssalati (5% sýrður rjómi, túnfiskur, tómatþykkni (tomatopaste), rauðlaukur og hvítlaukur) annars vegar, og L&L, 11% osti og skinku hins vegar.

Hádegismatur
1 dós Dagmál – hindber og vanilla.
1 stk. Polarkraft extrem m. heimalöguðu túnfiskssalati annars vegar, og L&L og banana hins vegar.

Millibiti
1 stk. Protein Blast m. kókosbragði.

Kvöldmatur
200 gr. ýsa velt upp úr kókos, möndlum, speltmjöli og sesamfræjum + kryddi, steikt á pönnu í smá ólívuolíu.
100 gr villihrísgrjónablanda.
40 gr 5% sýrður rjómi
ferskt salat m. sólþurrkuðum tómötum, ólívum, furuhnetum og kirsjuberjatómötum.

Kvöldsnarl er eftir og enn óákveðið hvað verður.

Ég fór líka í ræktina áðan og lyfti. Tók brjóstkassa og þríhöfða… og svo magaæfingar. Fór líka í gær og brenndi bara. Hins vegar fer ég ekki meira í ræktina þessa viku, er að vinna svo stíft um helgina.


Polarkraft extrem

28 nóvember, 2007

Hamingja, hamingja, hamingja. LOKSINS er uppáhaldsbrauðið mitt komið til Íslands. Ég uppgötvaði þetta brauð þegar ég bjó í Noregi… reyndar í Svíþjóð þar sem maður fór oft yfir til að versla. En þetta heitir Polarkraft extrem og er mjög trefjaríkt og 100 gr innihalda bara 170 kkal, sem er það minnsta sem ég veit um fyrir nokkuð brauð. Það er líka tiltölulega lítið af kolvetnum í því, eða 33 grömm í hverjum 100 grömmum. Þess má geta að svona venjulegt heilhveitibrauð inniheldur um 50 grömm af kolvetnum og 260 hitaeiningar í hverjum 100 grömmum, og brauð eins og Orkubrauð eða Fitty brauð, sem eru ágæt og innihalda ca 34-35 grömm af kolvetnum í hverjum 100 grömmum, innihalda samt um 220 kkal í sama magni. Þetta Polarkraft extrem er svona hálfgert rúnnstykki, seld 6 saman í pakka og hvert stykki vegur um 80 grömm, eða eins og tvær brauðsneiðar. Svo fyrir utan alla þessa hollustu þá er það bara alveg rooooosalega gott :D Fann þetta í Bónus… alveg snilld :D

En nóg um það. Ég hef ekki komist í ræktina í gær eða í dag. Hef verið í svo miklu stússi; versla með ömmu, skutla Elísu í söngupptöku, prjónaklúbbur, tónleikar, hjálpa krökkunum með heimaverkefnin o.s.frv. Er bara drulluþreytt núna og nenni varla í ræktina. Hefði svo sem gott af því að fara, ég kemst ekkert um helgina þar sem ég er að vinna svo mikið. Sé til á eftir þegar kvöldmaturinn er sjatnaður. Fer kannski bara þannig að ég geti horft á ANTM á Cross Trainernum og lyfti á morgun í staðin.

Mataræðið hefur verið mjög fínt, sátt með það, og ég vona að þessi sukkkíló renni nú af mér. Vil ekki hafa þau :Þ


*grenj*

27 nóvember, 2007

87,6 kg :( Upp um 1,2 kg. Freeeekar ömurlegt að sjá þetta þó ég hafi búist við því. Reyndar er þessi vigtun kannski ekki alveg sambærileg við hinar þar sem ég var á næturvakt og kerfið allt svolítið í rugli. En þetta er samt talan. Æ, ég vissi þetta svo sem alveg, fann það bara á líkamanum. Finn enn fyrir eins og ég sé smá bjúguð, sem er svo sem ekkert óalgengt eftir næturvaktirnar, en ég er líka voða eitthvað þung í magann bara. Það er eins gott að ég verði aftur komin niður í 86,4 kg næsta þriðjudag. Stefni enn á að ná 85 kg fyrir jól, ég á alveg að ná því.


Bleeeeeeeah!

26 nóvember, 2007

Fuss bara, ég er viss um að ég er með 2 kg af bjúg og sukki á mér. Finn alveg að ég er meira svona blobbleg. Finn fyrir undirhökunni og finnst puttarnir feitir. Kannski er þetta bara einhver ímyndun í mér, stundum er maður bara svona andlega feitur.

Ég er svo sem búin að standa mig í mataræðinu í dag, en mér finnst ég samt voða þung á mér. Er svo að fara á aukavakt á slysó í nótt og var eiginlega búin að hugsa mér að far aí ræktina bara svona rétt áður en ég færi í vinnu. En svo datt kallinum í hug að fara í bíó með mági mínum, og mér fannst nú alveg einum of að skikka hann til að sleppa því svo ég gæti farið í ræktina. Þannig að ég rauk bara af stað í ræktina rétt fyrir hálfsjö og náði 35 mínútum á Cross Trainernum, áður en ég þurfti að rjúka heim aftur og skila kallinum bílnum. Er vön að taka 50 mín, en þetta var þó skárra en að sleppa því alveg að fara.

Hef svo sannarlega ekki mikla trú á þyngdartapi á morgun… satt að segja verð ég himinlifandi ef ég verð ekki búin að þyngjast um meira en eitt kíló síðan fyrir viku. Já, það hlaut að koma að einum svona skelli ;)


Humm humm sukk sukk

25 nóvember, 2007

Já, í fyrsta skipti í langan tíma er ég bara virkilega óánægð með mig og mig grunar að ég verði þyngri á þriðjudaginn núna en fyrir viku. Fór á djamm í gær sem ég hefði alveg mátt sleppa. Fór fyrst til frænku minnar í heimsókn, fengum okkur bjór og kjöftuðum heillengi og það var bara gaman. Svo fékk ég þá flugu í hausinn að fara í slysópartýið og fór með þeim niður í bæ á eitthvað skrall. Fórum á Oliver, sem mér finnst reyndar alveg ótrúlega leiðinlegur staður. Skil ekki afhverju hann verður alltaf fyrir valinu hjá þessu fólki :Þ Jújú, skemmti mér vel og allt það, en þetta var samt djamm sem ég hefði alveg getað verið án. Líka það að ég ætlaði ekkert á þetta djamm, var búin að ákveða áður að fara ekki. Svei mér þá, stundum held ég að maður bæti frekar á sig ef svindlið er ekta svindl, en ef maður gerir það meðvitað að leyfa sér eitthvað, þá sleppur maður betur.

Dagurinn í dag var bara ónýtur, fór að vísu í barnaafmæli hjá litla frænda unnustans, lifði það svona sæmilega af. En ég er ekkert búin að hugsa allt of vel um hollustuna í dag. Fékk mér að vísu engar kökur, en fékk mér heitan brauðrétt og eitthvað smjördeigsstykki með skinku og osti… örugglega stúrfullt af fitu. Já og fékk mér líka smá lakkrískonfekt. Æ, maður veit bara alveg hvenær maður fer yfir strikið og stundum finnur maður bara hvort maður sé þyngri eða ekki, og mér finnst ég bara ógeðslega þung núna. Ég veit svo sem alveg að það rennur eitthvað af mér á morgun, en hvort það dugi til að vera í sömu þyngd og fyrir viku… er ekki viss um það.

Jæja, bleble, það hjálpar ekkert að væla og vola. Verð bara að vera dugleg á morgun og svo verður ekkert sukk á mér næstu vikurnar… og hana nú. Við förum náttúrulega í þetta jólateiti í vinnunni 15. des, en fram að því ætla ég að vera rosa dugleg.


Og það er komin helgi :D

23 nóvember, 2007

Það er svo dásamlegt að eiga frí um helgar :D Krakkalakkarnir eru hjá mér núna, þau eru svo yndisleg. Las fyrir þau Harry Potter áðan og Hjalti Sævar ofurhetja datt nú út af á meðan ég var að lesa, athyglin ekki alveg nógu mikil, hehehe, enda er hann bara fimm ára. Arna Valdís, sem er sjö ára, fylgdist hins vegar spennt með og las eiginlega með í hljóði á meðan ég las upphátt. Elísa Auður gelgja nennti hins vegar ekkert að hlusta, enda að verða 13 ára eftir tvo mánuði.

Ég dreif mig í ræktina áðan, ánægð með mig þar. Var nefninlega alveg á mörkunum að nenna, en fór svo samt. Tók bak og tvíhöfða. Ætla svo á morgun og brenna.

Mataræðið er bara búið að vera rosa fínt, fyrir utan að ég skóflaði í mig heilu Toblerone stykki, hehehe. Þetta er svona 100 gramma stykki, sem er nú alveg slatti af kaloríum, eða svona um 525. En uss hvað þetta var gott, og þar sem þetta var meðvitað svindl þá hef ég ekkert samviskubit. Mágkona mín kom með þetta fyrir viku þegar hún skrapp heim frá DK, en hún er að skólast þar í nokkra mánuði, og þetta er bara búið að vera uppi í skáp. Ég á alveg fimm svona stykki í viðbót. Hugsa að ég hendi hluta af þessu í Elísu og kærastann… hann er reyndar algjör Toblerone-isti. Var nánast sár að systir hans gæfi mér heilan pakka af þessu alveg eins og honum, hahaha ;D

Jæja, ég og mitt nammi, er samt ekki að þyngjast, ég finn það alveg ;) Þetta er sko alveg lífsstíll sem ég get sætt mig við :D Vera dugleg að mestu, en leyfa mér alveg smá nautnasemdir inn á milli ;)


Endalaust sælgætisát

22 nóvember, 2007

Ég er bara ekki hissa á að mér hafi gengið illa að koma mér í hollustu og standa við átakið á meðan ég var bara að vinna á slysó. Það er nánast undantekning að það vaði ekki allt þarna í sælgæti í skálum þegar maður er á vakt. Fór þarna í gær og jújú, ákveðið að panta kvöldmatinn frá einhverjum skyndibitastað og svo var keypt hellings nammi fyrir afganginn og dreift á milli starfsfólks. Ég reyndar var með nesti, svo ég var ekki með í pöntuninni, en sælgætið var náttúrulega flóandi þarna út um allt. Ég verð bara að viðurkenna að ég stóðst ekki freistinguna og fékk mér. Ætlaði nú bara að fá mér svona 5 mola, en þeir urðu örugglega 30.

En jájá, ég græt það ekkert svakalega, hef engar áhyggjur af vigtinni út af einu litlu svindli. Svo ætla ég bara í ræktina á eftir.

Nú er jólateiti hjá slysó á næstunni og ég er að velta fyrir mér hvort ég eigi að kíkja eftir matinn. Ætla ekki að vera í matnum, bara tími því ekki, þar sem við erum svo að fara í jólateiti hjá aðalvinnustaðnum mínum líka. Ég reyndar efast um að ég nenni í þetta slysópartý. Þá dett ég bara í það og verð þunn daginn eftir, og það er bara leiðinlegt.

En jólateitið hjá Laser-Lækningu er 15. des og þá verður haldið að Búðum og gist eina nótt. Ég og unnustinn ætlum að fara og hafa það rosalega gott. Svo er spurning hvort maður tími að splæsa í einhvern nýjan, flottan kjól fyrir þetta tilefni, svona til að monta sig af kílóamissinum. Eða hvort ég grafi bara upp einn af gömlu kjólunum mínum sem ég var hætt að passa í ;) Ætla allavegana að vera voða fín ;)


Byrja á að klúðra planinu fína ;)

21 nóvember, 2007

Jájá, ekkert alvarlegt klúður sko. Ég ætlaði bara að vera svo voða sniðug og nota kosti þessarar síðu. Setti upp myndasíðu og þyngdarsíðu og allt svona, og svo þetta fína vikuplan, þar sem hugsunin er sú að ég geri mér plan fyrir hverja viku, svona hreyfingarlega séð ;) Ætlaði að vera voða dugleg og fara í pallatíma í dag, en var svo plötuð á kvöldvakt á slysó, þannig að ekki kemst ég í ræktina. En það er svo sem allt í lagi, fór í gær og í fyrradag. Tók vel á fótleggjum, lærum og öxlum í gær og er með skemmtilegar harðsperrur í rassinum ;) Ég fer þá kannski bara í staðin í ræktina á föstudaginn þegar ég ætlaði að eiga frí.

Annars hitti ég tvær skvísur í ræktinni í gær sem eru að vinna með mér á slysó og það var voða gaman að heyra frá þeim að þær sæu hellings mun á mér :D Alltaf skemmtilegt þegar aðrir taka eftir að maður sé að grennast.

En já, ég nennti ekki að hafa lykilorð á neinum af þessum aukasíðum mínum hérna. Svona er ég bara og ég nenni ekki lengur að pukrast með það.

Jæja, ætla að halda áfram að lesa nýjustu Harry Potter bókina áður en ég þarf að mæta í vinnu.


Jíha!

20 nóvember, 2007

Og enn fór ég niður og það alveg um heilt kíló :D Er alveg hissa stundum hvað þetta gengur vel. Er sem sagt 86,4 kg í dag og komin undir 30 í BMI ;D Mér finnst þetta frábært. Bara 1.4 kg eftir í 85 kg markmiðið mitt. Svo er spurning hvernig manni tekst að halda þessu yfir jólin. En næsta markmið er svo að komast í 70 kg fyrir maí 2008. Á eftir að setja það betur niður á blað, en allavegana þá er ég nú enn bara að einbeita mér að komast í 85 kg ;)

Fór í ræktina í gær og púlaði á sporöskjunni á meðan ég horfði á Heros… snilld að stíla þetta inn á einhvern þátt, þá gleymir maður sér smá. En svo finnst mér reyndar skipta aðalmáli að hafa góða tónlist að púla við. Ætla svo í ræktina einhverntíman í kvöld aftur og þá lyfta. Er stundum svolítið löt við að fylgja því prógrammi eftir… samt veit ég hvað það er gott og formar vöðvana vel.

Jæja, ég fór með bílinn í reglubundna skoðun áðan, þriggja ára skoðun, og er því bíllaus fram eftir degi. Er í fríi í dag og ætla bara að liggja í leti hér heima. Henti í þvottavél og kannski nenni ég að brjóta saman þvott á eftir… kannski :Þ

Kann ágætlega við þetta wordpress dæmi ;)


Smá update

19 nóvember, 2007

Það gekk ekki rassgat að blogga á centralinu svo hingað er ég komin. Nenni ekki heldur að hafa leyniorð á síðuna, fólk verður bara að sætta sig við að ég sé svona þung og ég verð bara að sætta mig við það líka. Það verður þá bara að hafa það að einhver álpist hér inn sem ég hefði frekar viljað að hefði ekki séð þetta.
En helgin var ljúf, leti og afslöppun. Fór ekkert í ræktina og fékk mér bara bjór og hnetur og súkkulaðirúsínur. Eldaði góðan mat á laugardagskvöldið og buðum vini okkar í mat. Annars þá bara tókum við aðeins til á laugardaginn og höfðum það síðan bara voða næs. Sváfum út og á sunnudeginum fórum við síðan og versluðum nokkrar jólagjafir.

Hef einhvernvegin litlar áhyggjur af þyngdinni, vona bara að ég hafi ekki þyngst. Er svona næstum sama þó ég standi í stað núna. En ég ætla samt að vera duglegri þessa vikuna en þá síðustu. Nú styttist í að ég ætli að vera orðin 85 kg og mig langar að ná því markmiði fyrir jól.

En já, ætla í ræktina í kvöld. Mataræðið er búið að vera fínt í dag og þá er bara að halda því áfram. Engar súkkulaðirúsínur þessa viku takk ;)